breyting á deiliskipulagi
Kjalarnes, Sætún 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 826
25. júní, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Finns Kristinssonar dags. 9. mars 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Sætúns 1 á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að afmörkun deiliskipulags Sætúns 1 er breytt, vegna breytingar á deiliskipulagi Vesturlandsvegar, þannig að skipulagsmörk sem snúa að Vesturlandsvegi færast í lóðarmörk milli svæðis F annars vegar og hins vegar svæða A og B, samkvæmt uppdr. Landslags ehf. dags. 4. mars 2021. Tillagan var auglýst frá 5. maí 2021 til og með 22. júní 2021. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn Vegagerðarinnar dags. 12. maí 2021.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.