(fsp) stofnun lóða
Kjalarnes, Fitjar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 492
23. maí, 2014
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa var lögð fram fyrirspurn Guðjóns Júlíusar Halldórssonar dags. 30. janúar 2014 varðandi uppbyggingu á landi Fitja á Kjalarnesi, Samkvæmt uppdr. Einars Ingimarssonar arkitekt dags. 28. janúar 2014. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að nýju deiliskipulagi í samræmi við fyrirspurnina, á eigin kostnað. Tillagan verður auglýst þegar hún berst.