breyting á deiliskipulagi vegna Kalksléttu 1 og Koparsléttu 22
Kjalarnes, Esjumelar-Varmadalur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 615
6. janúar, 2017
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. desember 2016 var lagt fram bréf Kristínar Sólnes hdl. frá LEX lögmannsstofu f.h. Ásgerðar Ragnarsdóttur hrl, dags. 12. desember 2016, vegna samþykktar á deiliskipulagi vegna Esjumela á Kjalarnesi sem birtist í B-deild Stjórnartíðinda 28. október 2016, en óskað er eftir upplýsingum um hvernig Reykjavíkurborg hyggst leysa úr fráveitumálum á hinu deiliskipulagða svæði. Erindinu var vísað til umsagnar skrifstofu sviðsstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt bréfi skrifstofu sviðsstjóra, dags. 4. janúar 2017.
Svar

Bréf skrifstofu sviðstjóra, dags. 4. janúar 2017, samþykkt.