breyting á deiliskipulagi vegna Kalksléttu 1 og Koparsléttu 22
Kjalarnes, Esjumelar-Varmadalur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 595
28. júlí, 2016
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Íslenska gámafélagsins ehf., dags. 25. júlí 2016, um framkvæmdaleyfi vegna lóðar E á Esjumelum. Jarðvegsskipt verður á hluta svæðisins (um 2000 m2)fyrir athafnaplan í tengslum við rekstur Íslenska gámafélagsins ehf. Jarðvegsdýpt er frá 2,5 metrum upp í 4 metra þ.a. reikna má með uppúrtekt sem nemur 6-7000 m3. Þeim jarðvegi verður komið fyrir á lóðarmörkum norðanmegin í reitnum sem snýr að Esjunni. Sáð verður í mönina og gróðursett tré. Fyrirhugað er skjólbelti í tengslum við þessa mön.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.