breyting á deiliskipulagi
Kjalarnes, Hof
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 631
12. maí, 2017
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. maí 2017 var lögð er fram tillaga Landslags, dags. 27. apríl 2017, að nýju deiliskipulagi fyrir Esjuhof, spildu úr Hofslandi I við Esjurætur á Kjalarnesi. Í tilögu að deiliskipulagi er gerð grein fyrir mögulegri uppbyggingu svæðisins til framtíðar og er m.a. verið að afmarka byggingarreit, bílastæði, hestagerði og stíga. Markmiðið er að byggja upp aðstöðu til að þjóna göngu-, hesta- og hjólreiðamönnum með salernisaðstöðu, hesta- og farangursskýli auk möguleika á kaffisölu og aðstöðu fyrir starfsfólk. Stærð svæðisins sem skipulagið nær yfir er um 15 hektarar. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs
Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 7.3, sbr. 12. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.