breyting á deiliskipulagi
Kjalarnes, Skrauthólar 4
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 615
6. janúar, 2017
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa frá 9. desember 2016 var lögð fram umsókn Kristins Ragnarssonar, mótt. 28. nóvember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi jarðarinnar Skrauthólar á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að svæði vestan og norðan við núverandi húskosti nr. 4 við Skrauthóla verði ráðstafað fyrir ferðaþjónustu þar sem unnt er að leigja tjaldstæði, hjólhýsastæði og lítil færanleg smáhýsi með tilheyrandi þjónustubyggingu fyrir salernis og snyrtiaðstöðu, samkvæmt uppdr. Kristins Ragnarssonar arkitekts ehf., dags. 23. nóvember 2016. Einnig er lögð fram rýmingaráætlun Veðurstofunnar, ódags. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. desember 2016 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Skrauthólum 1, 2, og 3, Sjávarhólum og Vallá.