(fsp) þjónustumiðstöð
Kjalarnes, Dalsmynni
Síðast Synjað á fundi fyrir 5 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 715
8. febrúar, 2019
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. nóvember 2018 var lögð fram fyrirspurn Bjarna Bærings Bjarnasonar dags. 10. október 2018 ásamt greinargerð dags. 28. september 2018 um uppbyggingu á alhliða þjónustumiðstöð fyrir stærri flutningabíla ásamt skiptistöð vegna almenningssamgangna á þeim hluta lóðarinnar Dalsmynni, sem er á mótum Vesturlandsvegar og Kjósarvegar. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar samgöngustjóra og Strætó BS og er nú lögð fram að nýju umsögn samgöngudeildar dags. 26. nóvember 2018 og umsögn Strætó bs. dags. 19. nóvember 2018. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. febrúar 2019.
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 8. febrúar 2019.