breyting á deiliskipulagi
Grundarhverfi
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 647
1. september, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. ágúst 2017 var lögð fram umsókn Veitna ohf. , mótt. 22. ágúst 2017, um endurnýjun á framkvæmdaleyfi fyrir uppbyggingu aðalfráveitukerfis í Grundarhverfi á Kjalarnesi með tilheyrandi hreinsi- og dælustöðvum. einnig eru lagðir fram uppdrættir Almennu verkfræðistofunnar, dags. 12. febrúar 2008, bréf Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 27. janúar 2015 og dreifibréf Veitna vegna vinnu við tengingar, dags. 22. ágúst 2017. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 1. september 2017.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 1. september 2017 . Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í . gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.

162 Reykjavík
Landnúmer: 221616 → skrá.is
Hnitnúmer: 10109848