breyting á deiliskipulagi
Kjalarnes, Saltvík
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 587
27. maí, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Atla Kjartans Guðbjörnssonar f.h. Stjörnueggja ehf., mótt. 1. febrúar 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Saltvíkur á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að nýtingarhlutfall á reit A er aukið úr 0,1 í 0,2 og byggingarreitur er skilgreindur og að byggingarreitur á reit C er færður til, að núverandi vegi, og byggingarreitur er skilgreindur, samkvæmt uppdr. TAG teiknistofu, dags. 1. febrúar 2016. Einnig er lagt fram bréf Atla Jóhanns Guðbjörnssonar, dags. 1. febrúar 2016. Tillagan var auglýst frá 11. apríl til og með 23. maí 2016. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.