breyting á deiliskipulagi
Kjalarnes, Saltvík
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 826
25. júní, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Finns Kristinssonar dags. 9. mars 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Saltvíkur á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að afmörkun deiliskipulags Saltvíkur er breytt, vegna breytingar á deiliskipulagi Vesturlandsvegar, vegna breyttrar legu á nýjum stíg í tengslum við ný undirgögn undir Vesturlandsveg, samkvæmt uppdr. Landslags ehf. dags. 8. mars 2021. Tillagan var auglýst frá 5. maí 2021 til og með 22. júní 2021. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.