breyting á deiliskipulagi
Kjalarnes, Saltvík
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 497
27. júní, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn TAG teiknistofunnar f.h. Stjörnugrís hf. dags. 21. mars 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi jarðarinnar Saltvíkur á Kjalarnesi. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit og breyting á nýtingarhlutfalli skv. uppdrætti TAG teiknistofu, dags. 24. mars 2014. Einnig er lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 31. mars 2014. Tillagan var auglýst frá 14. maí til og með 25. júní 2014. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar