breyting á deiliskipulagi
Efstaleiti 7
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 744
20. september, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. ágúst 2019 var lögð fram umsókn ASK Arkitekta ehf. dags. 18. júní 2019 ásamt bréfi dags. 14. júní 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi RÚV-reits vegna lóðarinnar nr. 7 við Efstaleiti. Í breytingunni felst stækkun byggingarreits ofanjarðar vegna stigahúss og lyftu, aukningu á byggingarmagni ofanjarðar og breytta skilgreiningu á notkun, samkvæmt uppdrætti ASK Arkitekta ehf. dags. 14. júní 2019. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Efstaleiti 9, 11, 13, 15 og 17.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6.gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.

103 Reykjavík
Landnúmer: 176594 → skrá.is
Hnitnúmer: 10058295