breyting á deiliskipulagi
Spítalastígur 10
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 718
1. mars, 2019
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa frá 22. febrúar 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. febrúar 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja eina hæð ofan á, breyta rishæð og fjölga íbúðum um eina ásamt því að breyta útistiga í húsi á lóð nr. 10 við Spítalastíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. mars 2019.
Samþykki meðlóðarhafa í mhl. 02 áritað á teikningu, umsagnir Minjastofnunar dags. 30. október 2017, 13.júní 2018, 10. september 2018 og 11. febrúar 2019 og lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 09. mars 2018 við fsp. SN180103. Einnig fylgja útskrift úr gerðabók embættis afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 26. október 2018 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. október 2018 og minnispunktum dagsettum 27. nóvember 2018. Gjald kr. 11.000
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. mars 2019.