breyting á deiliskipulagi
Arnargata 10
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 463
11. október, 2013
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 27. september 2013 var lögð fram fyrirspurn Einars Kristins Hjaltested dags. 24. september 2013 um að byggja við húsið á lóðinni nr. 10 við Arnargötu, samkvæmt uppdr. Andrésar Narfa Andréssonar dags. 14. júlí 2013. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. október 2013
Svar

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 8. október 2013 eru ekki gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106567 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006750