Svalir og tröppur
Tjarnargata 16
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 677
20. apríl, 2018
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. apríl 2018 þar sem sótt er um leyfi fyrir nýjum svölum út frá eldhúsi 1. hæðar og tröppum frá þeim niður í garð á lóð nr. 16 við Tjarnargötu.
Samþykki meðeigenda dags. 26. febrúar 2018, bréf hönnuðar um beiðni um undanþágu frá BR 112/2012 dags. 7. mars 2018 fylgja erindinu.
Einnig umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 27. febrúar 2018 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 16. apríl 2018. Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Tjarnargötu nr. 14 og 18.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100907 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023582