framkvæmdaleyfi
Rafstöðvarvegur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 861
18. mars, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. mars 2022 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 1. mars 2022 um framkvæmdaleyfi fyrir gerð göngu- og hjólastíg meðfram Rafstöðvarvegi frá Toppstöð að núverandi hringtorgi við Bíldshöfða. Einnig er lagt fram teikningasett dags. í febrúar 2022. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. mars 2022.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 18. mars 2022 . Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1551/2021.