(fsp) Ofanábygging
Hafnarstræti 17
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 527
13. febrúar, 2015
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. febrúar 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja hótel í flokki V með 50 herbergjum úr steinsteypu með mansardþaki sem verður tengt við nýbyggingu á lóðinni Hafnarstræti 19, norðan og vestan við verndað timburhús sem fyrir er á lóð og verður endurbyggt í upprunalegri mynd með hótelherbergum á efri hæðum og morgunverðasal i hlöðnum steinkjallara, á lóð nr. 17 við Hafnarstræti.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. október 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2014. Einnig fylgir greinargerð vegna hljóðvistar dags. í nóvember 2014, brunahönnun frá Mannvit dags. 2. febrúar 2015, útreikningur á varmatapi dags. 3. febrúar 2015, skýrsla um ástandsskoðun og prófanir frá Mannvit dags. 22. janúar 2015, minnisblöð frá verkfræðistofunni Hnit dags. 8. apríl, 18. júlí, 18. nóvember og 21. og 27. nóvember 2014 og 20. janúar 2015, umsagnir Minjastofnunar Íslands dags. 9. september og 4. desember 2014 og 12. janúar og 9. febrúar 2015, bréf frá skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 3. febrúar 2015 og bréf frá verkfræðistofunni Hnit dags. 9. febrúar 2015 fylgja erindi. Áður samþykkt niðurrif: xx ferm., xx rúmm. Stækkun: XX ferm., XX rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.