Parhús
Urðarbrunnur 68-70
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1087
20. október, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteypt parhús á tveimur hæðum auk kjallara að hluta og innbyggðum bílskúr á lóð nr. 68-70 við Urðarbrunn.
Stærð: 423.8 ferm., 1.491.0 rúmm.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 28. ágúst 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. ágúst 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 31. ágúst 2020.
Erindi fylgir mæliblað 5.054.5, útgefið 6. júlí 2007, hæðablað 5.054.5 útgáfa B2, dags. í janúar 2011.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

113 Reykjavík
Landnúmer: 205796 → skrá.is
Hnitnúmer: 10095702