Viðbygging - innra skipulag og sameina eignir
Mosgerði 9 18.15.511
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Víðir Sigrúnarson
Byggingarfulltrúi nr. 1085
29. september, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að byggja viðbyggingu til vesturs, breyta þakformi, breyta og bæta við kvistum, setja svalir á austurhlið efri hæðar, breyta innra skipulagi, sameina eignir og breyta í einbýlishús, íbúðarhúsi á lóð nr. 9 við Mosgerði.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. júlí 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. júlí 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 13. júlí 2020.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á uppdráttum samþykktum 14. ágúst 2001 og bréf aðalhönnuðar dags. 20. júlí 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. september 2020 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 21. september 2020. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Mosgerði 7, 8, 10 og 11 og Melgerði 12, 14 og 16 frá 18. ágúst 2020 til og með 15. september 2020. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: 21,8 ferm., 46.0 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108033 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022530