Breyting á ytra byrði húss
Leifsgata 28 01.19.530.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Olga Eleonora M. Egonsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 1066
5. maí, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta útliti sem felst í því að glugga er breytt í svalahurð og hurð í glugga á 3 hæð í íbúð 0301 í húsi á lóð nr. 28 við Leifsgötu.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 20. apríl 2020.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102617 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018381