Íbúðarhús - mhl.01, mh.02, mhl.03, mhl.04
Jöfursbás 11
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1064
21. apríl, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja fimm steinsteypt íbúðarhús í þremur matshlutum, í mhl.01 eru 45 íbúðir, í mhl.02 eru 41 íbúð og sameiginleg aðstaða og í mhl.03 eru 51 íbúð, hjóla- og vagnageymsla er mhl.04 á lóð nr. 11 við Jöfursbás.
Erindi fylgir greinagerð Eflu um brunahönnun dags. 17. mars 2020 og teikning B1000, útfærsla á algildri hönnun eftir íbúðum, dags. 17. mars 2020. Einnig fylgir bréf frá Þorpinu-vistfélag ehf dags. 20. apríl 2020 og bréf SBB með afriti af lóðaleigusamningi og kvaðayfirlýsingu dags. 21. apríl 2020.
Stærðir:
Mhl.01: A-rými 2.717,6 ferm., B-rými 623,5 ferm, 7.671,0 rúmm.
Mhl.02: A-rými 2.367,6 ferm., B-rými 569,0 ferm, 6.593,7 rúmm.
Mhl.03: A-rými 3.037,3 ferm., B-rými 544,2 ferm, 8.659,1 rúmm.
Mhl.04: A-rými 86,6 ferm., B-rými 0,0 ferm, 253,3 rúmm.
Samtals stærðir á lóð: A-rými 8.209,1 ferm., B-rými 1.736,7 ferm, 23.177,1 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

112 Reykjavík
Landnúmer: 228389 → skrá.is
Hnitnúmer: 10131063