Lækka lóð og stoðveggir
Vagnhöfði 7 04.06.230.4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1064
21. apríl, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að lækka yfirborð lóðar og koma fyrir stoðveggjum og fallvörnum á lóðarmörkum, skipta kjallara upp í 6 rýmiseiningar og bæta við sex nýjum iðnaðarhurðum með innbyggðum inngangshurðum á norðurhlið iðnaðarhúss, mhl.02, á lóð nr. 7 við Vagnhöfða.
Erindi fylgir yfirlýsing burðarþolshönnuðar dags. 13. febrúar 2020, bréf hönnuðar dags. 17. febrúar 2020, samþykki lóðarhafa undirritað 8. mars 2020, hluti úr mæliblaði 4.062.3 dags. 15. júlí 2019, samkomulag milli lóðarhafa og veitna dags. 5. júní 2019 og niðurstöður brunavarna dags. 13. febrúar 2020, bréf hönnuðar dags. 21. mars 2020, svör við athugasemdum dags. 21. mars 2020
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. mars 2020 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 16. mars 2020.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

110 Reykjavík
Landnúmer: 110633 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025300