Viðbygging
Skólavörðustígur 36 01.18.140.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1064
21. apríl, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að hækka um eina hæð og byggja einnar hæðar viðbyggingu með þaksvölum auk þess sem gerðar verða svalir á nýju hæðina á húsi á lóð nr. 36 við Skólavörðustíg.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 23. mars 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. apríl 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. apríl 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 6. apríl 2020.
Stækkun : 138,0 ferm., 481,0 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.