Bílskúr, matshluti.02
Kambsvegur 4 01.35.260.5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Hreinn Halldórsson
Viktoría Róbertsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 1065
28. apríl, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr með steyptri gólfplötu, útveggjum úr timbri og með einhalla þaki á lóð nr. 4 við Kambsveg.
Samþykki meðeigenda húss, dags. 6 febrúar 2020, fylgir erindinu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. apríl 2020 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 27. apríl 2020. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Kambsvegi 2 og Kleppsvegi 84 frá 19. mars 2020 til og með 16. apríl 2020. Engar athugasemdir bárust.
Stærð bílskúrs er: A rými 25,8 ferm., 262,3 rúmm. B rými 2,2 ferm., 21,9 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

104 Reykjavík
Landnúmer: 104202 → skrá.is
Hnitnúmer: 10024806