Viðbygging við frystivélahús við mhl. 05 og nýr mhl. 08
Norðurgarður 1 01.11.220.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1057
25. febrúar, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja við núverandi frystivélahús, mhl.05, úr staðsteyptri steinsteypu að hluta og að hluta úr stálgrind, auk þess sem eimsvali verður settur á þakið, sem verður mhl 08, á lóð nr. 1 við Norðurgarð.
Erindi fylgir bréf aðalhönnuðar vegna athugasemda heilbrigðiseftirlits dags. 5. febrúar 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. febrúar 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. febrúar 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 24. febrúar 2020.
Stækkun mhl. 05: 140,8 ferm.,655,6 rúmm.
Stærðir mhl. 08: 39,4 ferm., 212,8 rúmm.
Samtals stækkun: 180,2 ferm., 868,4 rúm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.