Breyta atvinnuhúsnæði í 6 íbúðir
Miðstræti 12 01.18.311.9
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1067
12. maí, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta atvinnuhúsnæði í 6 íbúðir í húsi á lóð nr. 12 við Miðstræti.
Erindi fylgir nýr umsóknartexti móttekinn 2. mars 2020, umboð dags. 25. febrúar 2020, bréf hönnuðar vegna algildrar hönnunar dags. 25. febrúar 2020. Einnig skýringarmynd hönnuðar dags. 19. mars 2020, minnisblað Eflu um brunahönnun dags. 27. apríl 2020 og húsaskoðun dags. 5. maí 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. mars 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. mars 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 16. mars 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 17. apríl 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. apríl 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 20. apríl 2020.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101941 → skrá.is
Hnitnúmer: 10021773