Breytingar á stofnerindi BN052800
Skógarvegur 16 01.79.430.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1048
10. desember, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN052800, þannig að m.a. lyftuskakt er minnkað, hurð sett milli stigagangs og svæðis framan við lyftu, léttum veggjum breytt úr gipsplötum í hleðslustein, glerhandriðum á svölum er breytt í rimlahandrið auk þess sem fyrirkomulagi á lóð er breytt lítillega, við húsið á lóð nr. 16 við Skógarveg.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

103 Reykjavík
Landnúmer: 213565 → skrá.is
Hnitnúmer: 10097676