Nr. 27B, breyting á BN052546 - Apótek - 1.hæð - mhl.01, rými 0105 / 0002
Efstaleiti 19 01.74.520.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1058
3. mars, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN052546, mhl.01, þannig að innréttað verður apótek, áætlaðir eru 4 starfsmenn, í rými 0105 á 1. hæð og lager í rými 0002 í kjallara, einnig er opnunarátt inngangshurðar inn í apótekið breytt í húsi nr. 27B á lóð nr. 19 við Efstaleiti.
Erindi fylgir yfirlýsing um breytingu atvinnurýma á lóð dags. 18. febrúar 2020 og yfirlýsing eigenda dags. 18. febrúar 2020.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.