Svalir - svalahurð - þakgluggi
Laugateigur 46 01.36.520.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Helgi Mar Hallgrímsson
Byggingarfulltrúi nr. 1048
10. desember, 2019
Frestað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum og nýjum breytinum á innra skipulagi, ásamt því að byggja nýjar svalir og svalahurð á vesturkvist og bæta við þakglugga yfir stiga upp á rishæð íbúðar 0101 í húsi á lóð nr. 46 við Laugateig.
Erindi fylgir lóðauppdráttur 1.365.2 samþykktur af byggingarfulltrúa 1. ágúst 2017, afrit samþykktra aðaluppdrátta dags. 22. febrúar 1990, 22. maí 1986 og 2. október 1946, afrit af ódagsettri umsögn burðarvirkishönnuðar er varða teikningar dags. 18. janúar 2019 og afrit af samþykki meðlóðarhafa og varða teikningar dags. 18. janúar 2019.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. desember 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. desember 2019. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 9. desember 2019.
Gjald kr. 11.200
Svar

Frestað.
Vísað til athugasemda.

105 Reykjavík
Landnúmer: 104684 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017487