Innrétta ölstofu
Bergstaðastræti 2 01.17.130.6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1050
7. janúar, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að opna veitingastað í flokki ll, tegund f, krá, fyrir hámarks gestafjölda 55 manns og tvo starfsmenn, lækka kjallaragólf um 50cm og setja stiga upp á 2. hæð við norðurgafl húss á lóð nr. 2 við Bergstaðastræti.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar í tölvupósti dags. 17. október 2019.
Stækkun: 36.1 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.