Hækka þak, kvistir og svalir á rishæð
Tómasarhagi 23 01.55.410.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Valur Hlíðberg
Hildur Einarsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 1056
18. febrúar, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að hækka veggi og þak, bæta við tveimur kvistum og svölum ásamt því að bæta við stiga innanhúss upp í ris sem verður hluti íbúðar á 2. hæð í húsi, mhl.01, á lóð nr. 23 við Tómasarhaga.
Stækkun 115.3 ferm., 182.0 rúmm. Nýtingarhlutfall 0,73.
Erindi fylgir umboð eigenda eignar 0201 ásamt vottuðu samþykki meðlóðarhafa dags. 21. október 2019, afrit af mæliblaði 1.554.1 útgefið 19. maí 1953 og varmatapsútreikningar dags. 31. október 2019, umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 31. janúar 2020, bréf hönnuðar dags. 31. janúar 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. janúar 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. janúar 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 27. janúar 2020. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Tómasarhaga 18, 20, 21, 22 og 25, Lynghaga 26 og 28 og Ægissíðu 50 og 50A frá 25. nóvember 2019 til og með 23. desember 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Margrét Sigurðardóttir og Þórir Haraldsson dags. 19. desember 2019.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106578 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023625