Viðbygging við íbúðarhús - Sjá líka niðurríf bílskúrs BN056674
Sjafnargata 3 01.19.601.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Aðalheiður Magnúsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 1091
17. nóvember, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypta viðbyggingu með flötu þaki, með gróðurþekju, sem verður tengd við íbúð í kjallara og 1. hæð á norð- vesturhlið húss á lóð nr. 3 við Sjafnargötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. október 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. október 2019.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 3. október 2019 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 10 september 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. desember 2019 fylgir erindi. Einnig bréf skipulagsfulltrúa frá 9. desember 2019. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Sjafnargötu 1, 2, 4, 5 og 6 og Freyjugötu 28, 30 og 32 frá 6. nóvember 2019 til og með 4. desember 2019. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun viðbyggingar eru: 57,1 ferm., 205,6 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102640 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015300