5 hæða verslunar- og íbúðarhúsnæði
Laugavegur 73 01.17.402.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1048
10. desember, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja 5 hæða steinsteypt hús auk kjallara með bílageymslu og stoðrýmum, á 1. hæð verður verslun og þjónusta en 10 íbúðir á 2. - 5. hæð húss á lóð nr. 73 við Laugaveg.
Stærðir:
Bílakjallari: 362,4 ferm., 1.367,3 rúmm
1. hæð: 296,1 ferm, 1.270,6 rúmm, B-rými 13,4 ferm., C-rými 3,1 ferm.
2. hæð: 214,1 ferm, 687,3 rúmm, B-rými 17,3 ferm., C-rými 0,0 ferm.
3. hæð: 259,4 ferm, 823,3 rúmm, B-rými 33,5 ferm., C-rými 0,0 ferm.
4. hæð: 258,4 ferm, 820,2 rúmm, B-rými 5,7 ferm., C-rými 28,8 ferm.
5. hæð: 142,8 ferm, 536,7 rúmm, B-rými 0,0 ferm., C-rými 46,2 ferm.
Samtals ofanjarðar: 1,170,8 ferm, 4.138,0 rúmm, B-rými 69,9 ferm., C-rými 78,1 ferm.
Samtals m. bílakjallara: 1.533,2 ferm, 5.505,3 rúmm/5.577,8 rúmm m. botnplötu
Erindi fylgir ósamþykktur lóðauppdráttur nr. 1.174.0 dags. 28. nóvember 2017 og hæðablað dags. 18. júlí 2017, Skýringar hönnuðar dags. 26. september 2019, viljayfirlýsing eigenda að Hverfisgötu 92 - 94 dags. 26. september 2019, Mannvit -skýrsla um sambrunahættu dags. 26. september 2019, hljóðvistarskýrsla dags. 26. september 2019. Einnig bréf hönnuðar móttekið 1. nóvember 2019 ásamt fylgiskjal með breytingum. Mannvit - skýrsla um sambrunahættu dags. 23. maí 2018 og útreikningar á kólunartölum frá hönnuði dags. 8. nóvember 2019.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar byggingarfulltrúa frá 6. desember 2019 fylgir erindi, ásamt tölvupósti frá byggingarfulltrúa þar sem umsagnar skipulagsfulltrúa er dregin til baka dags. 25. nóvember 2019. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 9. desember 2019 og hæðablað dags. 3. desember 2019.
Gjald k. 11.200 + 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101570 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017595