Ýmsar breytingar - mhl. 04
Haukahlíð 1 01.62.910.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1036
10. september, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN055415 þannig að svalir á norður hlið eru stækkaðar, kassar utan um svalir íbúða 0205, 0305, 0405 og 0501, á vestur horni og suðurhlið eru fjarlægðir, inngangshurð færist til, innra skipulagi íbúða 0501 og 0503 breytist og salarhæð kjallara breytist í fjölbýlishúsi, mhl. 04 á lóð nr. 1 við Haukahlíð.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. september 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. september 2019.
Stækkun A rýmis er: 19,4 ferm., 99,4 rúmm.
Stækkun B rýmis er minnkun : -33,9,0 ferm., -216,6 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

102 Reykjavík
Landnúmer: 221262 → skrá.is
Hnitnúmer: 10109405