Ný viðbygging
Korngarðar 1 01.32.310.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1036
10. september, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu úr stálgrind klæddri berandi steinullarplötum og staðsteyptum veggjum að hluta, fyrir pökkun, lager, kæli og frystigeymslur, á vesturhluta lóðar nr. 1 við Korngarða.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 18. júlí 2019, afrit af umsókn til Vinnueftirlitsins dags. 17. júlí 2019, mæliblað dags. apríl 2014 og afrit af gildandi aðaluppdráttum samþ. 1. nóvember 2016.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. september 2019 fylgir erindi.
Erindi dregið til baka skv. tölvupósti byggingarfulltrúa dags. 2. september 2019.
Særðir mhl-03:
Samtals A-rými: 4.396,1 ferm., 79.514,8 rúmm.
Samtals B-rými: 43,6 ferm., 150,0 rúmm.
Samtals A- og B rými: 4.439,7 ferm., 79.664,8 rúmm.
Gjald kr. 11.200)
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

104 Reykjavík
Landnúmer: 222494 → skrá.is
Hnitnúmer: 10111980