Breyting inni - þrjár íbúðir
Bergþórugata 55 01.19.111.6
Síðast Frestað á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1057
25. febrúar, 2020
Frestað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi allra hæða þannig að í húsinu verða 3 íbúðir, eldri svalir verða fjarlægðar og gluggar færðir nær upprunalegri gerð, nýjar svalir gerðar, sagað niður úr gluggum fyrir svalahurðir auk þess sem ný vinnustofa verður byggð á baklóð þar sem áður var skúr á lóð nr. 55 við Bergþórugötu.
Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 18. ágúst 2019, varmatapsútreikningar mótt. 19. ágúst 2019, yfirlit yfir breytingar mótt. 19. ágúst 2019.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 20. september 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. september 2019.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. febrúar 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. febrúar 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 24. febrúar 2020. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Njálsgötu 72, 74, 76, 78, 80, 82, 84 og 86, Bergþórugötu 51, 53, 55, 57, 59 og 61, Barónsstíg 39, 41 og 43 og Snorrabraut 48, 50 og 52 frá 27. nóvember 2019 til og með 30. desember 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Hrafnhildur Sverrisdóttir dags. 29. desember 2019.
Vinnustofa: 45,2 ferm., 115,3 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Frestað.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 21. febrúar 2020.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102502 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007142