Svalir á bakhlið hússins
Stangarholt 10 01.24.600.5
Síðast Frestað á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir
Atli Viðar Thorstensen
Byggingarfulltrúi nr. 1087
20. október, 2020
Frestað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að koma fyrir svölum á íbúðir 0101 og 0201 á suðurhlið og koma fyrir hurðum út á þær í húsinu á lóð nr. 10 við Stangarholt.
Umsögn skipulags frá 16. mars 2018 fylgir þar sem Jákvætt er að grenndarkynna erindi ef það berst.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda að Stangarholti 10-12 dags. 1 júní 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. október 2020 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 13. október 2020. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Stangarholti 8 og 12 og Stórholti 21 og 23 frá 8. september 2020 til og með 6. október 2020. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 11.200
Svar

Frestað.
Lagfæra skráningu.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103276 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020239