70-72 - Klæðning - gluggabreyting - breyting á svölum o.fl.
Engjasel 70-86 04.94.730.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1032
13. ágúst, 2019
Frestað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að klæða norðvestur gafl og suðvestur- og norðausturhlið, með sléttri álklæðningu, setja opnanleg gluggafög í stigagang og íbúðir á norðvesturhlið, breyta veltigluggum, setja svalahurðir í stað glugga á suðvesturhlið jarðhæðar ásamt því að skipta steyptum svalahandriðum út með léttum ál-gler handriðum á fjölbýlishúsi nr. 70-72 á lóð nr. 70-86 við Engjasel.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. ágúst 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. ágúst 2019
Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 24. júni 2019, dagskrá, mætingarlisti og fundargerð frá fundi Húsfélags Engjasels 70-72 dags. 9. mai 2019, og umboð íbúðareiganda dags. 5. maí. 2019.
Gjald kr. 11.200
Svar

Frestað.
Vísað til athugasemda og ábendinga í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. ágúst 2019.