Hjólaskýli fyrir starfsfólk NLSH
Hringbraut Landsp. 01.19.890.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1024
11. júní, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja til bráðabirgða létt hjólaskýli úr stáli klætt hálfgegnsærri plastklæðningu, óeinangrað og óupphitað sem verður fært á endalegan stað þegar að byggingarferli Landspítalalóðar vindur fram og verður Mhl. 48 á lóð Landsspítalans við Hringbraut.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. maí 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. maí 2019.
Stærð: 51,7 ferm., 200,6 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.