Svalir - kjallaratröppur
Lokastígur 5 01.18.121.5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Halldór Örn Óskarsson
Byggingarfulltrúi nr. 1026
25. júní, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að fjarlægja tröppur á bakhlið 1. hæðar, byggja svalir í þeirra stað og breyta aðkomu að kjallara ásamt því að gerð er grein fyrir innra skipulagi allra hæða fjölbýlishúss á lóð nr. 5 við Lokastíg.
Erindi fylgir þinglýstur eignaskiptasamningur innfærður 6. janúar 1994, samþykki meðeigenda, samþykki eigenda Lokastígs 3 og 7 og Skólavörðustígs 22 og 22A og þinglýst afsal innfært 3. febrúar 2014.
Einnig skýrsla um íbúðaskoðun dags. 4. júní 2019.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101769 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020023