Fjölbýlishús
Laugavegur 67A 01.17.402.7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1033
20. ágúst, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt fjölbýlishús með sex íbúðum á lóð nr. 67A við Laugaveg.
Erindi fylgir bréf frá Minjastofnun dags. 11. febrúar 2019, útreikningur á varmatapi dags. 11. apríl 2019, yfirlýsing dags. 26. apríl 2019 og bréf frá Byggingarfulltrúanum í Reykjavík dags. 6. mars 2019.
Stærð, A-rými: 316,8 ferm., 1.054,5 rúmm.
B-rými: 4,8 ferm.
Samtals: 321,6 ferm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við fokheldi.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101574 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017589