Fjölbýlishús á 3-5 hæðum og fl.
Skyggnisbraut 1 05.05.150.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1036
10. september, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt fjölbýlishús, einangrað og klætt að utan með mismunandi klæðningum, Gæfutjörn 2, fjórar hæðir með 13 íbúðum og Skyggnisbraut 1, fjórar hæðir með 16 íbúðum, Skyggnisbraut 3, fimm hæðir með 15 íbúðum og helming bílakjallara með 28 stæðum sem verður 1. áfangi á lóð nr. 1 við Skyggnisbraut.
Erindi fylgir greinargerð aðalhönnuðar dags. 24. apríl 2019, útreikningur á heildarvarmatapsramma dags. 10. apríl 2019 og hljóðvistarskýrsla frá Hljóðtæknilausnum dags. 23. apríl 2019.
Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. júlí 2019 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. júlí 2019.
Stærðir:
Mhl. 01, bílgeymsla, A-rými: 913,8 ferm., 2.741,4 rúmm.
Mhl. 02, A-rými: 1.388,7 ferm., 4.110,6 rúmm.
B-rými: 58,8 ferm.
Mhl. 03, A-rými: 3.290,2 ferm., 9.869,1 rúmm.
B-rými: 189,9 ferm.
Samtals: 5.306,5 ferm., 15.435,9 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

113 Reykjavík
Landnúmer: 226841 → skrá.is
Hnitnúmer: 10126425