Viðbygging - breytingar á núverandi húsi
Grettisgata 41 01.17.312.4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Hannes Páll Pálsson
Byggingarfulltrúi nr. 1019
7. maí, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu, breyta innra skipulagi og að útlit verði fært nær upprunalegri mynd húss á lóð nr. 41 við Grettisgötu.
Erindi fylgir hæðablað dags. janúar 2002 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 11. mars 2019.
Stækkun: 86,3 ferm., u.þ.b. 252,8 rúmm.
Heildarstærð eftir stækkun: 167,7 ferm., 532,8 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.