Breyting á tengigangi í kjallara
Aðalstræti 10 01.13.650.4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1020
14. maí, 2019
Samþykkt
55993
55994 ›
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að tengja sýningarrými í Aðalstræti 10 og 16 með því að gera op í fullri breidd tengigangs í kjallara Aðalstrætis 10, koma fyrir pallalyftu í húsi nr. 10 og innrétta ganginn sem sýningarrými.
Erindi fylgir minnisblað um brunavarnir dags. 23. mars 2019 og samþykki eigenda Íslandshótela dags. 9. júlí 2018.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Þinglýsa skal kvöð um opnun yfir lóðarmörk á milli Aðalstrætis 10 og 16 áður en byggingarleyfi er gefið út. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.