Fjölbýlishús með 69 íbúðum og bílageymslu
Skógarvegur 2 01.79.310.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1023
4. júní, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús með 69 íbúðum og bílageymslu í kjallara á lóð nr. 2 við Skógarveg.
Erindi fylgir afrit af fasteignayfirliti, hæða- og mæliblað.
Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 26. apríl 2019 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. apríl 2019 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. maí 2019 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. maí 2019. Greinagerð Mannvits um hljóðvist dags. 17. febrúar 2019 og greinagerð hönnuða mótt. 9. maí 2019. Greinagerð hönnuðar dags. 15. maí 2019 með varmatapsútreikningi, deiliteikningu af svalahandriði og svalahurð, einnig eru útreikningur á A og B rýmum og teikningar A24-A27 algild hönnun dags. 7. maí 2019 fylgiskjöl með erindinu. Greinagerð arkitekta dags. 31. maí 2019.
Stærðir:
Kjallari 3.211,7 ferm., 9.723,9 rúmm.
1. hæð 1.739,1 ferm., 5.046,0 rúmm.
2. hæð 1.734,1 ferm., 5.099,0 rúmm.
3. hæð 1.741,6 ferm., 5.120,6 rúmm.
4. hæð 1.504,9 ferm., 5.658,9 rúmm.
Þakrými 460,0 rúmm.
Botnplata 642,34 rúmm.
Heildarstærð: 9.931,4 ferm., 30.667,5 rúmm.
Gjald kr. 11.200 + 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

103 Reykjavík
Landnúmer: 226365 → skrá.is
Hnitnúmer: 10123640