Fjölbýlishús - mhl. 01 - 02 - 03 - 04
Hraunbær 153 04.34.510.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1020
14. maí, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús á 2-5 hæðum. Um er að ræða 4 matshluta með alls 99 íbúðum á lóð nr. 153 við Hraunbæ.
Erindi fylgir mæliblað 4.345.1 dags. 12. nóvember 2018, hæðablað Hraunbær 153 dags. 30. nóvember 2018 og varmatapsútreikningar dags. 9. apríl 2019.
Stærð:
Mhl. 01, A-rými: 1.592 ferm., 4.794,4 rúmm., B-rými: 57,4 ferm.
Mhl. 02, A-rými: 625,9 ferm., 2.023,5 rúmm., B-rými: 14,1 ferm.
Mhl. 03, A-rými: 2.921,8 ferm., 8.872,8 rúmm., B-rými: 108,1 ferm.
Mhl. 04, A-rými: 2.375,3 ferm., 7.485,1 rúmm., B-rými: 70,5 ferm.
Samtals A- og B-rými: 7.465,1 ferm.
Nýtingarhlutfall ofanjarðar: 0,75
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

110 Reykjavík
Landnúmer: 227326 → skrá.is
Hnitnúmer: 10127647