Stækkun svala - breyting inni.
Tjarnarsel 2 04.93.030.7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1042
29. október, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum auk ýmissa breytinga á innra skipulagi, fjarlægja stiga milli kjallara og 1. hæðar, breyta fyrrum vinnustofum í íbúðarherbergi og útbúa aukaíbúð i kjallara húss nr. 2 við Tjarnarsel.
Erindi fylgir skýrsla frá húsaskoðun dags. 23. september 2019 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 15. október 2019.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. mars 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. mars 2019.
Stækkun: 224.2 ferm., 226.7 rúmm.
Gjald kr. 11.200 + 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrðaraðilar. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.