Reyndarteikningar 3.hæð
Síðumúli 23 01.29.510.5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1037
17. september, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á 3. hæð og staðsetja nýjan flóttastiga, sem verður hringstigi, með svölum á norð- austurhlið húss á lóð nr. 23 við Síðumúla.
Samþykki meðeigenda dags. 7. janúar 2019 og aftur 10. sept. 2019 og skýringarblað hönnuðar ódags. og 2. sept. 2019 fylgir erindi.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. janúar 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. janúar 2019.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. maí 2019, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. maí 2019.
Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Ármúla 38 og 40 og Síðumúla 25 frá 25. mars 2019 til og með 22. apríl 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Jón Ingvar Garðarsson dags. 22. apríl 2019.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 103837 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015202