Þrílyft atvinnuhúsnæði
Lambhagavegur 7 02.64.750.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1009
19. febrúar, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt, þrílyft atvinnuhúsnæði, einangrað að utan, á lóð nr. 7 við Lambhagaveg.
Erindi fylgir greinagerð arkitekts ódagsett, útreikningur á orkuramma dagsettur 20. desember 2018 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. febrúar 2019.
Stærð: 4.246,7 ferm., 22.273,5 rúmm.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.