3. hæð - íbúðir
Brautarholt 6 01.24.120.4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1024
11. júní, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt erum leyfi til að innrétta 7 íbúðir og byggja svalir á norður- og suðurhlið verslunar- og skrifstofuhúss á lóð nr. 6 við Brautarholt.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. janúar 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. janúar 2019.
Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 22. febrúar 2019 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. febrúar 2019.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. júní 2019 fylgir erindi. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Brautarholti 4, 4A, 8 og Skipholti 3,5,7, 9 og Stúfholti 1-3 frá 15. apríl 2019 til og með 30. maí 2019. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103022 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007691